Lýsing
Nemendum verður skipt upp í hópa og unnið allan daginn í nokkra daga að gagnvirku og/eða margmiðlunarverki sem verður sýnt við lok námskeiðsins. Kennarar ganga á milli hópa og veita leiðbeiningar. Meðfram verða haldnir fyrirlestrar listamanna úr ólíkum geirum og sóttir viðburðir á Raflost raflistahátíðinni. Að lokum er skilað inn “dokúmentasjón” af verkinu.
Hæfniviðmið
Í lok námskeiðs eiga nemendur að hafa:
- Unnið gagnvirkt margmiðlunarverk í samvinnu við nemendur úr öðrum listgreinum.
- Þjálfað hæfni sína til að vinna í blönduðum miðlum út fyrir sitt sérsvið.
- Fengið reynslu af vinnu með öðrum listamönnum úr öðrum listgreinum
- Fengið reynslu af að “dokumentera” margmiðlunarverk
Námsmat
Mætingarskylda. Lokaverkefni metið. Nemendur í Listaháskóla Íslands fá 2 einingar
Kennarar
- Áki Ásgeirsson
- Jesper Pedersen
- Ríkharður Friðriksson
- Gestakennarar (tilkynnt síðar)
Dagskrá
Mánudagur 23.maí
10:00 Kynning á námskeiðinu og valið í hópa
11:00 Unnið stutt verkefni, hópvinna
15:00 Yfirferð
Þriðjudagur 24.maí
10:00 Fundur
15:00 Yfirferð (gestakennari)
Miðvikudaginn 25.maí
10:00 Fundur
15:00 Yfirferð
15:30 Gestafyrirlestur
Fimmtudaginn 26.maí
10:00 Fundur
15:00 Lokayfirferð
17:00 Opnun RAFLOST í Mengi
Föstudagur 27.maí
10:00 Fundur
17:00 Sýning
Laugardagur 28.maí
Frágangur og skrásetning (ljósmyndir, vídeó og texti).
Tímasetning eftir samkomulagi.
Upplýsingar
Sendið póst á raflost@raflost.is